← Allir listamenn

Píanóleikari

Nína Margrét Grímsdóttir

Píanóleikari, fædd í Reykjavík árið 1965. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1985, nam síðan við Guildhall-tónlistar- og leiklistarskólann og City University í London og Mannes-tónlistarskólann í New York og lauk doktorsprófi í píanóleik frá City University of New York árið 2010. Doktorsritgerð hennar fjallar um píanóverk Páls Ísólfssonar, og árið 2001 gaf BIS út disk hennar með öllum frumsömdum píanóverkum hans. Fyrir Naxos hljóðritaði hún meðal annars tónlist Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, og hún hefur einnig hljóðritað fyrir Acte Préalable og Skref. Hún hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur og Konunglegu kammersveitinni í Tókýó og stóð fyrir tónleikaröðum í Hörpu, Salnum og Gerðubergi frá 2001 til 2019. Hún er aðjúnkt við tónlistardeild Listaháskóla Íslands, stýrir framhaldsdeild Tónskóla Sigursveins, kennir á píanó við Tónlistarskóla Kópavogs og er formaður Íslandsdeildar WPTA, alþjóðlegra samtaka píanókennara.

Framundan

Aðrir flytjendur