← Allir listamenn

Saxófónleikari

Sigurður Flosason

Saxófónleikari sem lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1983 og bakkalár- og meistaragráðum frá Indiana University árin 1986 og 1988, hvort tveggja í klassískum saxófónleik og jazzfræðum, og stundaði einkanám hjá George Coleman í New York veturinn 1988 til 1989. Hann hefur gefið út rúmlega þrjátíu plötur með frumsaminni tónlist, jazzstandördum, þjóðlegri tónlist, trúarlegri tónlist, tilraunatónlist og blús. Hann hefur níu sinnum hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin og verið tilnefndur tvisvar til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Hann hefur kennt rytmíska tónlist við Tónlistarskóla FÍH, Menntaskóla í tónlist og nú við Listaháskóla Íslands og var sæmdur fálkaorðunni árið 2021 fyrir framlag sitt til jazztónlistar og tónlistarkennslu.

Framundan

Aðrir flytjendur