
Kammermúsíkklúbburinn og fjölskyldudagskrá Hörpu bjóða börnum á aldrinum sex til fimmtán ára á kammertónleika í Kaldalóni. Tónlistarnemar leika kafla úr þekktum kammerverkum og hlustendur fá að kynnast hljóðfærunum, tónskáldunum og tónlistinni sem flutt er. Kynnir er Sigrún Harðardóttir, og efnisskrá og flytjendur verða kynnt síðar. Aðgangur er ókeypis.