← Allir viðburðir
Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Sinfóníutónleikar
Hannigan & Horsch
Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands
Tónleikarnir hefjast á Ricercar a 6 eftir Bach í útsetningu Antons Webern. Barbara Hannigan, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, stjórnar. Blokkflautuleikarinn Lucie Horsch leikur einleik í tveimur verkum: konserti eftir Bach í umritun Frans Brüggen fyrir blokkflautu og hljómsveit, og Whistles and Whispers from Uluru eftir eistneska tónskáldið Erkki-Sven Tüür, þar sem fuglasöngur við Eystrasalt mætir sandsteinsfjallinu Uluru í Ástralíu. Hljómsveitin leikur einnig tvö verk frá nýklassíska tímanum, Dumbarton Oaks eftir Stravinskíj og fyrstu sinfóníu Prokofíevs, Klassísku sinfóníuna. Tónleikarnir taka um tvær klukkustundir með hléi.
Efnisskrá
- Johann Sebastian BachRicercar a 6 (úts. Anton Webern)
- Johann Sebastian BachKonsert fyrir blokkflautu, BWV 1053 (úts. Frans Brüggen)
- Ígor StravinskíjDumbarton Oaks
- Erkki-Sven TüürWhistles and Whispers from Uluru
- Sergej ProkofíevSinfónía nr. 1, Klassíska sinfónían