← Allir tónleikastaðir

Kirkja · Höfuðborgarsvæðið, Garðabær

Vídalínskirkja

Vídalínskirkja í Garðabæ var vígð 30. apríl 1995 og er kennd við Jón Vídalín, sem var prestur í Görðum frá 1696 til 1698 og síðan biskup í Skálholti til dauðadags árið 1720. Postilla hans frá 1718 var mest notaða húslestrarbók landsins á 18. og 19. öld. Skúli H. Norðdahl arkitekt teiknaði kirkjuna, eins og safnaðarheimilið sem reist var á undan henni, og þegar opnað er á milli rúmast þar yfir 500 manns. Á vesturvegg er Kristsmynd eftir Baltasar Samper, klukkurnar þrjár voru gerðar í Bretlandi og orgelið er frá Aquincum Orgelbau í Búdapest.

Vídalínskirkja í lágri vetrarsól, hvít kirkja með bröttu þaki, hvítum klukknaturni með tveimur krossum og stórum dökkum krossi á hvítum vegg.

Staðsetning

Heimilisfang
Kirkjulundur 3210 Garðabær

Orgel

Smiður
Aquincum Orgelbau

Framundan