Allir viðburðir

Kammertónlist

Tónleikar til styrktar Vonarbrú

Teikning af lítilli steinbogabrú með grasbökkum beggja vegna, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Tónleikarnir bera yfirskriftina Örlög, gleði og yndishrúga. Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, sem leikur á orgel og píanó, koma báðar frá Akureyri og flytja nýja tónlist sem er að mestu eftir þær sjálfar. Kristín S. Bjarnadóttir, stofnandi almannaheillafélagsins Vonarbrúar, ávarpar gesti í upphafi og segir frá starfi félagsins, sem hlaut mannréttindaviðurkenningu Akureyrarbæjar síðastliðið vor fyrir hjálparstarf við barnafjölskyldur á Gaza. Ávarp og tónleikar taka fjörutíu til fimmtíu mínútur. Á eftir er boðið upp á kaffi í safnaðarheimilinu. Aðgangur er ókeypis og tekið er við frjálsum framlögum.

Flytjendur