← Allir listamenn

Sellóleikari

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir

Sellóleikari, ljóðskáld og tónskáld, fædd árið 1981. Hún lærði við tónlistarskólana á Akureyri og í Reykjavík, lauk burtfararprófi á selló vorið 2000 og hélt þá til Parísar þar sem hún lagði stund á barokksellóleik við Conservatoire de Paris og lauk þaðan prófi árið 2006. Kennarar hennar á selló voru Haukur Hannesson, Gunnar Kvaran, Michel Strauss, Bruno Cocset og Christophe Coin. Frá 2006 til 2020 lék hún með leiðandi frönskum barokksveitum. Hún leikur einnig með íslenskum barokk- og samtímasveitum, meðal annars Nordic Affect, Brák, Tindru og International Baroque Orchestra í Hallgrímskirkju, og er stofnandi barokk- og indípopphópsins Corpo di Strumenti / SÜSSER TROST / (N)ICEGIRLS og einn stofnenda þjóðlagasveitarinnar Gadus Morhua Ensemble. Hún hefur gefið út fjórar ljóðabækur, plötuna Ljúfa huggun með SÜSSER TROST og plötuna Peysur og Parruk með Gadus Morhua Ensemble. Hún stýrir Tólf tóna kortérinu, tónlistarvettvangi á Norðurlandi sem Listasafnið á Akureyri hýsir, og haustið 2025 kom út plata hennar Í ísbúð/Radość życia, portrett af Íslandi þar sem tíundi hluti efnisskrárinnar er á pólsku og eitt lag á svahílí. Hún er leiðandi sellóleikari Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og deildarstjóri klassískrar deildar við Tónlistarskólann á Akureyri. Á tónleikum sveitarinnar í Hofi 8. mars 2026, þegar hún heiðraði Jón Nordal á aldarafmæli hans, lék Steinunn einleik í sellókonserti Jóns undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar.

Framundan

Aðrir flytjendur