← Allir viðburðir
Kammertónlist
BaKaBa: Bach, Karólína og Bartók
Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Strengjakvartett Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands setur nafn vortónleika sinna, BaKaBa, saman úr nöfnum tónskáldanna þriggja. Hann leikur valda kontrapunkta úr Fúgulistinni eftir Johann Sebastian Bach, þar sem efniviðurinn er speglaður og honum snúið á alla vegu. Á efnisskránni eru einnig Sex lög fyrir strengjakvartett eftir Karólínu Eiríksdóttur og fyrsti strengjakvartett Béla Bartóks, op. 7 í a-moll. Kvartettinn ætlar sér að leika alla sex kvartetta Bartóks, einn af öðrum, og þetta er sá fyrsti. Í kvartettinum eru Greta Salóme Stefánsdóttir og Marteinn J. Ingvason Lazarz á fiðlur, Eydís Úlfarsdóttir á víólu og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir á selló.
Efnisskrá
- Johann Sebastian BachKontrapunktar úr Fúgulistinni
- Karólína EiríksdóttirSex lög fyrir strengjakvartett
- Béla BartókStrengjakvartett nr. 1 í a-moll, op. 7