Kirkja · Norðurland eystra, Þórshöfn
Þórshafnarkirkja
Þórshafnarkirkja var vígð 22. ágúst 1999. Hún er steinsteypt og í hefðbundnum kirkjustíl, með safnaðarheimili á jarðhæð, og gengið er inn um vesturgaflinn í forkirkju og þaðan beint inn í kirkjuskipið. Í kirkjunni eru stólar fyrir hundrað fimmtíu og sex og hægt að bæta nokkrum við. Á austurgaflinum er stór trékross eftir Jóhann Ingimarsson, bróður sr. Ingimars Ingimarssonar, fyrrum sóknarprests; þar sem trén mætast myndast tígull og í honum er gler með fimm rauðum punktum, og sá hluti krossins er alltaf upplýstur. Glugginn umhverfis krossinn er lóðréttur beggja vegna og dregst saman í odd beint fyrir ofan hann. Klukkurnar þrjár voru helgaðar á tveggja ára vígsluafmæli kirkjunnar, 26. ágúst 2001.

Staðsetning
- Heimilisfang
- Sunnuvegur680 Þórshöfn
Heimsóknir
- Sæti
- 156
Framundan
Ekkert er skráð hér sem stendur.
