← Allir viðburðir

Sinfóníutónleikar

Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Háskólakórinn

Umsjón: Langholtskirkja

Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins flytja sálumessu Gabriels Fauré. Einsöngvarar eru Kristján Jóhannesson barítón og Kári Hilmarsson drengjasópran. Hljómsveitin leikur einnig tvö verk eftir Jean Sibelius, Finlandiu og fyrsta kaflann úr fiðlukonsertinum í d-moll, þar sem Þórdís Emilía Aronsdóttir leikur einleik. Efnisskránni lýkur á Cantus arcticus eftir finnska tónskáldið Einojuhani Rautavaara, konserti fyrir fugla og hljómsveit frá 1972, þar sem hljómsveitin leikur með segulbandsupptökum af fuglasöng. Gunnsteinn Ólafsson stjórnar bæði kórnum og hljómsveitinni, sem hann stofnaði haustið 2004. Í hljómsveitinni leika að jafnaði fjörutíu til fimmtíu hljóðfæraleikarar á aldrinum þrettán til tuttugu og fimm ára.

Flytjendur

Fleira framundan

Sami flytjandi: Kristján Jóhannesson

Sviðsett ópera

Falstaff

Eldborg, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík

Frá 6.900 kr.≈ 50 EUR≈ 55 $≈ 79 CAD≈ 42 GBP≈ 376 DKK

Teikning af einni dúnfjöður sem liggur flöt, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Sami staður: Langholtskirkja

20:00Kórtónlist

Draumar

Langholtskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík

Verð ekki birt