Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, einnig kölluð Ungfónía, er hljómsveit ungs tónlistarfólks sem Gunnsteinn Ólafsson hljómsveitarstjóri stofnaði haustið 2004 ásamt nemendum tónlistardeildar Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólans í Reykjavík. Í henni leika að jafnaði fjörutíu til fimmtíu hljóðfæraleikarar á aldrinum þrettán til tuttugu og fimm ára, úr Listaháskólanum, tónlistarskólum höfuðborgarsvæðisins og tónlistarháskólum erlendis. Einleikarar og einsöngvarar hennar eru oftast nemendur sem eru að ljúka framhaldsnámi erlendis eða eru nýkomnir heim. Hún tekur fyrir þrjú til fjögur verkefni á ári og heldur tónleika víða um land. Á fyrstu tuttugu árunum frumflutti hún tuttugu og eitt verk eftir íslensk tónskáld og tíu erlend verk hér á landi. Hún var tónlistarhópur Reykjavíkur árið 2016 og kemur reglulega fram með Háskólakórnum.
Framundan

Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Háskólakórinn
Langholtskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Verð ekki birt

Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Háskólakórinn
Langholtskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Verð ekki birt
