
Fjórir söngvarar sem hingað til hafa einkum sungið saman við útfarir halda nú fyrstu tónleika sína undir nafninu Ferund. Allir sem fram koma eru feður. Tónleikarnir eru á feðradaginn, og öðrum feðrum og fjölskyldum þeirra er sérstaklega boðið. Óskar Pétursson syngur fyrsta tenór, Jón Þorsteinn Reynisson annan tenór, Ívar Helgason fyrsta bassa og Pálmi Óskarsson annan bassa, og Eyþór Ingi Jónsson leikur á píanó. Á efnisskránni eru kvartettlög héðan og að utan, flest vel þekkt. Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir tónleikunum í Hömrum.
Flytjendur
- Óskar Pétursson1. tenór
- Jón Þorsteinn Reynisson2. tenór
- Ívar Helgason1. bassi
- Pálmi Óskarsson2. bassi
- Eyþór Ingi Jónssonpíanó