← Allir listamenn

Jón Þorsteinn Reynisson

Söngvari og harmonikuleikari, fæddur í Skagafirði 12. ágúst 1988. Hann lærði á harmoniku við Tónlistarskóla Skagafjarðar hjá Stefáni Gíslasyni og lauk þaðan framhaldsprófi árið 2007. Platan Caprice kom út árið 2010. Frá 2012 nam hann við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn hjá Geir Draugsvoll og Andreas Borregaard og lauk þaðan BA-prófi árið 2015, MA-prófi árið 2018 og framhaldsprófi (Advanced Postgraduate Diploma) árið 2022. Hann syngur 2. tenór í Söngkvartettinum Ferund og leikur á harmoniku og syngur með Jónínu Björt Gunnarsdóttur á hátíðartónleikum í Akureyrarkirkju í desember 2026.

Framundan

Aðrir flytjendur