Óskar Pétursson
Tenór, fæddur á jóladag 1953 í Álftagerði í Seyluhreppi, en hefur búið á Akureyri mestan sinn aldur. Hann sótti sér tilsögn í söngskóla í Reykjavík og nam um skeið við Tónlistarskólann á Akureyri. Samhliða söngnum starfaði hann við bifvélavirkjun í um hálfa öld. Hann var einn af Álftagerðisbræðrum, sem gáfu út plötur og héldu reglulega tónleika. Á sólóferli sínum hefur hann gefið út plötur og komið fram með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og fjölda kóra um land allt. Hann var bæjarlistamaður Akureyrar árið 2002 og hlaut heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs Akureyrar árið 2023. Hann er 1. tenór í Söngkvartettinum Ferund.
Framundan
Ekkert framundan.
Aðrir flytjendur
Saman á sviði: Söngkvartettinn Ferund á feðradaginn
Eyþór Ingi Jónsson
Organisti og kórstjóri
Næst: 19. des.
Saman á sviði: Söngkvartettinn Ferund á feðradaginn
Ívar Helgason
Saman á sviði: Söngkvartettinn Ferund á feðradaginn
Pálmi Óskarsson