← Allir viðburðir

Djass

Gullöld sveiflunnar

Umsjón: Stórsveit Reykjavíkur

Teikning af tenórsaxófóni sem liggur á hliðinni, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Stórsveit Reykjavíkur heldur árlega nýárstónleika sína í Eldborg og helgar þá sveiflutímanum, árunum 1930 til 1950, þegar stórsveitir réðu ríkjum og hljómsveitarstjórar, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma. Efnisskráin er ný á hverju ári, sótt í nótnabækur stórsveita Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie og fleiri, og eingöngu eru leiknar upprunalegar útsetningar. Gestasöngvarar í ár eru Salka Sól Eyfeld og færeyski söngvarinn Jógvan Hansen. Sigurður Flosason stjórnar og kynnir.

Flytjendur