Stórsveit Reykjavíkur
Stórsveit Reykjavíkur var stofnuð í febrúar 1992. Helsti hvatamaður að stofnun hennar og aðalstjórnandi frá upphafi til ársins 1999 var Sæbjörn Jónsson, en síðan hefur sveitin unnið einkum með erlendum gestastjórnendum og leiðandi einstaklingum í íslensku jazzlífi. Hljómsveitin telur alla jafna sautján hljóðfæraleikara, fimm saxófóna, fjóra trompeta, fjórar básúnur og fjögurra manna hrynsveit og hefur átt heima í Hörpu síðan 2012. Á þremur áratugum hefur sveitin haldið á fjórða hundrað tónleika, farið í tónleikaferðir til Svíþjóðar og Danmerkur og gefið út tólf geisladiska, oftast í samstarfi við höfunda tónlistarinnar. Á hverju starfsári eru haldnir sex til átta tónleikar, þar á meðal að minnsta kosti einir með frumflutningi nýrrar íslenskrar tónlistar, einir með erlendum gestastjórnanda, einir eða tvennir með sögulegri stórsveitatónlist og einir fyrir börn og fjölskyldur, og auk þess árlegt stórsveitamaraþon þar sem stórsveitir landsins koma saman og leika hálftíma hver. Meðal gesta hennar hafa verið bandarísku stjórnendurnir Bob Mintzer, Frank Foster, Dick Oatts, Tim Hagans, Bill Holman, John Fedchock, Greg Hopkins, John Hollenbeck, Andrew D'Angelo, Travis Sullivan og Maria Schneider, og norrænir og þýskir stjórnendur á borð við Geir Lysne, Helge Sunde, Ole Kock Hansen, Eero Koivistoinen, Lars Jansson, Fredrik Norén, Jesper Riis, Nikolaj Bentzon, Ulf Adåker, Lasse Lindgren, Daniel Nolgård, Pétur Östlund, Maria Baptist og Ansgar Stripens. Nýjasti diskur sveitarinnar, Öræfi, geymir sjö verk píanóleikarans Kjartans Valdemarssonar tileinkuð náttúru Íslands undir stjórn Samúels Jóns Samúelssonar.
Framundan
Jólafjör með Þorra og Þuru
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Frá 5.900 kr.≈ 43 EUR≈ 47 $≈ 68 CAD≈ 36 GBP≈ 321 DKK
Gullöld sveiflunnar
Eldborg, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Frá 4.990 kr.≈ 36 EUR≈ 40 $≈ 57 CAD≈ 30 GBP≈ 272 DKK
Stórsveitin leikur tónlist Sigurðar Flosasonar
Silfurberg, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
6.990 kr.≈ 51 EUR≈ 56 $≈ 80 CAD≈ 43 GBP≈ 381 DKK




