
Fiðluleikarinn Joaquín Páll Palomares og píanóleikarinn Nína Margrét Grímsdóttir hafa leikið saman á tónleikum um árabil og koma nú í fyrsta sinn saman fram í Norðurljósum. Þau leika Sónötu Beethovens í A-dúr, op. 30 nr. 1, Sónötu Mendelssohns í F-dúr, Danse espagnole eftir de Falla í útsetningu Kreislers, úrval spænskra virtúósaverka og Tzigane eftir Ravel. Páll leiðir aðra fiðlu í Dönsku útvarpshljómsveitinni, gegndi áður sömu stöðu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur leikið í Kordo-kvartettinum frá 2018. Hann leikur á fiðlu eftir Gagliano frá því um 1750. Nína Margrét hefur gefið út fimm diska hjá BIS, Naxos, Acte Préalable og Skrefi og lauk doktorsprófi í píanóleik frá City University of New York.