← Allir listamenn

Fiðluleikari

Joaquín Páll Palomares

Fiðluleikari, fæddur árið 1987. Hann byrjaði að læra á fiðlu sex ára hjá foreldrum sínum, Unni Pálsdóttur og Joaquín Palomares, sem bæði eru fiðluleikarar, og síðan hjá Margréti Kristjánsdóttur við Tónlistarskóla Kópavogs og Auði Hafsteinsdóttur við Listaháskóla Íslands. Árið 2007 var hann einn sigurvegara í keppninni Ungir einleikarar. Hann lauk bakkalárprófi frá Hanns Eisler-tónlistarháskólanum í Berlín árið 2013, þar sem Ulf Wallin kenndi honum, og meistara- og einleikaraprófi hjá Serguei Azizian við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn árið 2018. Árið 2014 hlaut hann verðlaun í dönsku strengjakeppninni. Hann var leiðari annarrar fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og er nú annar tveggja leiðara annarrar fiðlu í Dönsku útvarpshljómsveitinni. Hann leikur í Kordo-kvartettinum, sem var stofnaður árið 2018.

Framundan

Aðrir flytjendur