Söngtónleikar
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui fagna aldarfjórðungi

Hjónin Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir messósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari fagna því að aldarfjórðungur er liðinn frá því að þau komu fyrst fram saman, í Guildhall-tónlistarskólanum í London árið 2002. Þau flytja lög sem þeim eru sérstaklega kær: útsetningar Javiers á þjóðlögum og sönglögum frá Íslandi, Írlandi, Bandaríkjunum og Suður-Ameríku, meðal annars á lögum Atla Heimis Sveinssonar, lög sem Haukur Tómasson og Hugi Guðmundsson sömdu fyrir rödd og gítar, tvö sefardísk lög og lög eftir þau sjálf. Tónleikunum lýkur á The Religion of Love, sem Javier samdi í minningu tónskáldsins Sir John Tavener við ljóð á arabísku eftir Ibn Arabi. Gestir þeirra eru Pétur Jónasson gítarleikari, Eyjólfur Eyjólfsson, sem syngur og leikur á flautu og langspil, og börn þeirra, Eva Jáuregui og Leó Guðrúnarson Jáuregui. Tónleikarnir taka um klukkustund, án hlés.
Efnisskrá
- Trad.Down by the Salley Gardens (úts. Francisco Javier Jáuregui)
- John Jacob NilesBlack is the Color (úts. Francisco Javier Jáuregui)
- John Jacob NilesWayfaring Stranger (úts. Francisco Javier Jáuregui)
- John Jacob NilesI Wonder as I Wander (úts. Francisco Javier Jáuregui)
- Atli Heimir SveinssonSöknuður (úts. Francisco Javier Jáuregui)
- Atli Heimir SveinssonAfmælisdiktur (úts. Francisco Javier Jáuregui)
- Francisco Javier Jáuregui, Guðrún Jóhanna ÓlafsdóttirSíðasti strætó fer korter í eitt
- Haukur TómassonHún er vorið
- Hugi GuðmundssonHvíld
- Francisco Javier JáureguiNani, nani, úr Sefardískum lögum
- Francisco Javier JáureguiYo m’enamorí d’un aire, úr Sefardískum lögum
- Francisco Javier JáureguiBlessuð sólin elskar allt
- Violeta ParraÞökk sé þessu lífi, Gracias a la vida í þýðingu Þórarins Eldjárns (úts. Francisco Javier Jáuregui)
- Francisco Javier JáureguiThe Religion of Love, In Memoriam Sir John Tavener
Flytjendur
- Guðrún Jóhanna Ólafsdóttirmessósópran
- Francisco Javier Jáureguigítar
- Pétur Jónassongítar
- Eyjólfur Eyjólfssonsöngur og flauta