← Allir listamenn

Söngvari og flautuleikari

Eyjólfur Eyjólfsson

Tenórsöngvari, flautu- og langspilsleikari, fæddur árið 1979. Hann lauk burtfararprófi í flautuleik og söng frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar árið 2002 og meistaraprófi frá Guildhall-tónlistar- og leiklistarskólanum í London árið 2005. Hjá Íslensku óperunni þreytti hann frumraun sína sem Skáldið í Skuggaleik eftir Karólínu Eiríksdóttur og Sjón og hefur þar einnig sungið Sellem í The Rake’s Progress og Peppe í Pagliacci. Á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði söng hann Spóann í frumflutningi Baldursbrár eftir Gunnstein Ólafsson. Erlendis hefur hann sungið hjá Opera North, English National Opera og English Touring Opera. Hann syngur óratoríur hér heima og víða um Evrópu og hefur meðal annars sungið guðspjallamanninn í Mattheusarpassíu Bachs í Sant’Ambrogio-basilíkunni í Mílanó. Ljóðatónleika hefur hann haldið með píanóleikurum á borð við Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, Dalton Baldwin og Rudolf Jansen. Árið 2020 lauk hann meistaraprófi í þjóðfræði frá Háskóla Íslands með ritgerð um langspilið. Nú rekur hann smiðju þar sem hann kennir á hljóðfærið, bæði í grunnskólum og á háskólastigi.

Framundan

Aðrir flytjendur