
Gítarleikarinn Andrés Þór Gunnlaugsson leikur með tríói sínu tónlist af plötunni Relocate, sem norska útgáfan Losen Records gaf út í ágúst. Á henni eru níu lög eftir Andrés, hljóðrituð í Reykjavík í desember 2024, þar sem skrifuð tónlist og spuni haldast í hendur. Tríóið hefur leikið saman í nokkur ár. Á efnisskránni er líka eldra efni úr safni þess. Nicolas Moreaux, sem býr ýmist í Reykjavík eða París, leikur á kontrabassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur.
Flytjendur
- Andrés Þór Gunnlaugssongítar
- Nicolas Moreauxkontrabassi
- Magnús Trygvason Eliassentrommur