← Allir listamenn

Trommuleikari

Magnús Trygvason Eliassen

Trommuleikari, fæddur árið 1985, sem byrjaði að læra á trommur sex ára hjá Guðmundi R. Einarssyni. Hann hefur lifað af því að semja og leika tónlist, mest skringipopp og spunatónlist eins og hann orðar það sjálfur. Hann hefur lengi verið í hljómsveitunum ADHD, Amiinu og Moses Hightower, sem var stofnuð árið 2007 og var tvívegis valin lagahöfundur ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, og hann leikur einnig í hist og. Hann hefur leikið með Seabear, Borko, Sin Fang og K-tríóinu, og plata þess tríós, Meatball Evening, var valin djassplata ársins 2013. Á Airwaves-hátíðinni 2012 kom hann fram 24 sinnum. Á árinu 2020 lék hann inn á tíu plötur með jafnmörgum hljómsveitum. Hann leikur á trommur í tríói Andrésar Þórs Gunnlaugssonar með Nicolas Moreaux, á plötunum Hereby og Relocate, og í hljómsveit Moreaux, Poney Moon.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur