← Allir viðburðir

Kammertónlist

Heimboð: Meta4 leikur Shaw, Beethoven og Sibelius

Umsjón: Kammermúsíkklúbburinn

Teikning af háum standlampa með plíseruðum skermi, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Finnski strengjakvartettinn Meta4 leikur á lokatónleikum sjötugasta starfsárs Kammermúsíkklúbbsins, og það er í fyrsta sinn í tíu ár sem erlendur kvartett leikur á vegum klúbbsins. Fyrst hljómar Blueprint eftir Caroline Shaw frá 2016, sjö mínútna verk sem vitnar í strengjakvartett Beethovens op. 18 nr. 6 og hefur ekki verið leikið hér áður, og síðan kvartett Beethovens. Eftir hlé leikur Meta4 Voces intimae eftir Jean Sibelius, sem lést árið 1957, sama ár og klúbburinn var stofnaður. Kvartettinn hefur starfað frá árinu 2001. Hjónin Antti Tikkanen og Minna Pensola leika á fiðlur og stýra Kuhmo-kammertónlistarhátíðinni í Finnlandi, Atte Kilpeläinen leikur á víólu og leiðir víóludeild Fílharmóníusveitar Helsinki, og Tomas Djupsjöbacka leikur á selló.

Efnisskrá

  1. Caroline ShawBlueprint (2016)
  2. Ludwig van BeethovenStrengjakvartett op. 18 nr. 6 (1800)
  3. Jean SibeliusStrengjakvartett í d-moll, op. 56, Voces intimae (1909)

Flytjendur