← Allir viðburðir

Annað

Hádegistónleikar með Erni Árnasyni

Teikning af mjóum borða sem liðast um sjálfan sig, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Bústaðakirkja heldur hádegistónleika alla miðvikudaga í október klukkan fimm mínútur yfir tólf og safnar um leið fyrir Ljósið, endurhæfingarmiðstöð fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein. Yfirskrift ársins er Lífið er fegurð og gleði. Síðasta miðvikudag mánaðarins flytja Örn Árnason leikari og Jónas Þórir, organisti kirkjunnar, valin revíulög og gamanmál. Jónas Þórir sér um dagskrá hádegistónleikanna að vanda. Aðgangur er ókeypis, tekið er við frjálsum framlögum til Ljóssins og bleikar slaufur Krabbameinsfélagsins eru til sölu. Léttar veitingar eru í safnaðarheimilinu á eftir.

Flytjendur