← Allir tónleikastaðir

Leikhús · Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík

Gamla bíó

Gamla bíó var reist fyrir Peter Petersen, sem hafði rekið kvikmyndahús í Fjalakettinum við Aðalstræti frá árinu 1907. Einar Erlendsson byggingameistari teiknaði húsið, framkvæmdir hófust 13. september 1926 og fyrsta sýningin var Ben Hur, 2. ágúst 1927. Húsið er steinsteypt og í hreinum nýklassískum stíl. Íslenska óperan starfaði þar frá 1982 til 2011, og á árunum 2014 til 2016 var húsið endurbætt að miklu leyti. Nú eru þar haldnir tónleikar, ráðstefnur, leiksýningar og aðrir viðburðir, í stórum sal með svölum og stillanlegu sviði. Á þriðju hæð er barinn Petersen svítan.

Framhlið Gamla bíós, með nafn hússins í upphleyptum stöfum yfir gluggaröð.
Ljósmynd: TommyBee

Staðsetning

Heimilisfang
Ingólfsstræti 2a101 Reykjavík

Framundan