Hljómsveitarstjóri
Eiríkur Rafn Stefánsson
Íslenskur trompetleikari og útsetjari, fæddur árið 1988. Hann hóf trompetnám við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar hjá Einari Jónssyni og lauk vorið 2013 bæði framhaldsprófi í rytmískum trompetleik og kennaraprófi frá Tónlistarskóla FÍH. Vorið 2019 lauk hann bakkalárgráðu í rytmískum útsetningum og tónsmíðum frá Tónlistarháskólanum í Amsterdam og sótti þar jafnframt einkatíma í trompetleik. Hann hefur leikið með Stórsveit Reykjavíkur, Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar, Seabear, Sóley og Lúðrasveit Hafnarfjarðar, og hefur skrifað fyrir hollenska stúdentastórsveit (Nederlands Student Jazz Orkest) og útsetjaraverkefni Jazz Orkest van het Concertgebouw. Árið 2016 stofnaði hann nínettuna The New Arrangements Nonet í Amsterdam. Hann kennir trompetleik við Skólahljómsveit Kópavogs og fræðigreinar við Listaháskóla Íslands, Menntaskóla í tónlist og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Framundan
Jólafjör með Þorra og Þuru
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Frá 5.900 kr.≈ 43 EUR≈ 47 $≈ 68 CAD≈ 36 GBP≈ 321 DKK


