Kór sem stofnaður var árið 1982 og Hörður Áskelsson hefur stjórnað frá upphafi. Hann syngur óratoríur, passíur og sálumessur og kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum og hefur frumflutt fjölda íslenskra verka, þar á meðal óratoríuna Cecilíu eftir Áskel Másson og Thor Vilhjálmsson árið 2009, Fléttu eftir Hauk Tómasson árið 2011 og óratoríuna Mysterium eftir Hafliða Hallgrímsson árið 2019. Kórinn hefur sungið í dómkirkjum víða í Evrópu og á hátíðum á borð við Listahátíðina í Björgvin, Norrænu kirkjutónlistarhátíðina í Gautaborg og Wiener Festwochen. Hann hlaut verðlaun í Alþjóðlegu kórakeppninni í Cork á Írlandi árið 1996 og þrenn gullverðlaun og Grand Prix í keppninni Cançó Mediterrània á Spáni árið 2014. Jólatónleikar hans eru árlegir.