← Allir listamenn

Dómorganisti

Matthías Harðarson

Organisti sem tók við starfi dómorganista við Dómkirkjuna í Reykjavík í júlí 2025. Hann er fæddur árið 1993 og ólst upp í Vestmannaeyjum. Tónlistarnámið byrjaði hann á píanó um tíu ára aldur og færðist yfir á orgelið að ráði kennara síns, Guðmundar H. Guðjónssonar organista, sem fékk honum lykil að Landakirkju til að æfa sig í. Hann nam við Tónskóla þjóðkirkjunnar, lauk BA-prófi í kirkjutónlist frá Listaháskóla Íslands og meistaraprófi í Árósum hjá Ulrik Spang-Hanssen, Lars Rosenlund Nørremark og Kristian Krogsøe, dómorganista þar í borg. Litúrgískt kirkjuspil lærði hann hér heima hjá Guðnýju Einarsdóttur, Eyþóri Inga Jónssyni og Láru Bryndísi Eggertsdóttur og kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni. Samhliða tónlistinni aflaði hann sér réttinda í vélstjórn, var vélstjóri á togurum og ferjum og kenndi vélstjórn í framhaldsskólanum í Eyjum fram á vor 2025. Hann kom fram á Orgelsumri í Hallgrímskirkju í júlí 2025. Frönsk orgeltónlist er það sem hann leikur helst.

Framundan

Ekkert framundan.