← Allir listamenn

Hljómsveitarstjóri

Jóhann Smári Sævarsson

Bassasöngvari og hljómsveitarstjóri sem hóf söngnám í Tónlistarskólanum í Keflavík hjá Árna Sighvatssyni og í Nýja tónlistarskólanum hjá Sigurði Demetz. Framhaldsnám stundaði hann í sameiginlegri óperudeild Royal College of Music og Royal Academy of Music í Lundúnum. Hann var þrjú ár einsöngvari við Kölnaróperuna og fjögur ár á föstum samningi við óperuna í Regensburg, söng sem gestur víða um Evrópu, meðal annars í Bregenz, Glyndebourne og hjá Scottish Opera, og hefur sungið undir stjórn Bernards Haitink og Kents Nagano. Alls hefur hann sungið í 85 óperuuppfærslum. Hann kom heim árið 2008 og var tilnefndur sem rödd ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2010 fyrir Vetrarferðina og fyrir hlutverk Hallgríms í Hallgrímspassíu Sigurðar Sævarssonar. Hann er listrænn stjórnandi óperufélagsins Norðuróps, sem stofnað var á Akureyri árið 1999 og hefur starfað í Reykjanesbæ frá 2001, stjórnar Karlakór Keflavíkur, Söngsveitinni Víkingum og Hátíðarkór Norðuróps og kennir klassískan söng við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Hann hefur stjórnað Brúðkaupi Fígarós og sálumessum Mozarts og Verdis og leikstýrt meðal annars Toscu og Évgení Ónegín.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur