← Allir listamenn

Saxófónleikari

Jóel Pálsson

Saxófónleikari, fæddur í Reykjavík árið 1972. Fyrstu árin bjó hann í New York, þar sem faðir hans var við nám, en frá þriggja ára aldri ólst hann upp í Reykjavík. Hann lærði á klarínett frá átta ára aldri og sneri sér um fimmtán ára að tenórsaxófóni og djassi. Að loknu námi við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónlistarskóla FÍH fór hann til Berklee College of Music í Boston og lauk þaðan BM-prófi með hæstu einkunn árið 1994. Hann hefur gefið út sjö plötur með eigin tónlist, þar sem skrifaðir kaflar og spuni mætast og heyra má áhrif frá kirkjutónlist, rokki, fönki og þjóðlögum. Plötur hans Klif, Septett, Varp og Horn hlutu allar Íslensku tónlistarverðlaunin sem djassplata ársins. Það gerðu einnig Innri, tónlist hans í útsetningu Kjartans Valdemarssonar fyrir Stórsveit Reykjavíkur, og Another Time, sem hann gerði með ASA-tríóinu. Hann var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2011 sem flytjandi og árið 2016 ásamt Kjartani fyrir stórsveitartónlistina. Hann leikur í Stórsveit Reykjavíkur og djasskvintettinum Annes. Árið 2005 stofnaði hann fatamerkið Farmers Market með konu sinni, Bergþóru Guðnadóttur, sem hannar fötin, og hann rekur einnig plötuútgáfuna Flugur.

Framundan

Aðrir flytjendur