Hörpuleikari
Hannah Stone
Hún er velskur hörpuleikari, fædd og uppalin í Swansea, sem hefur komið fram frá átta ára aldri. Hún nam hjá Meinir Heulyn í Wales og síðan hjá Imogen Barford við Guildhall-tónlistar- og leiklistarskólann í London, þar sem hún lauk bakkalár- og meistaragráðu. Eina önn nam hún hjá Helgu Storck við Mozarteum í Salzburg og síðar hjá Caryl Thomas við Konunglega velska tónlistar- og leiklistarháskólann í Cardiff. Hún vann fyrstu verðlaun á Eisteddfod, þjóðarhátíð Walesbúa, árið 2008 og önnur verðlaun í Franz Joseph Reinl-keppninni í Vín árið 2010, sama ár og hún var fyrsti hörpuleikari Schleswig-Holstein-hátíðarhljómsveitarinnar. Frá 2011 til 2015 var hún opinber hörpuleikari Karls Bretaprins, nú konungs. Staðan var endurvakin árið 2000 og Hannah var sú fjórða sem gegndi henni. Hún hefur komið fram sem gestur með BBC National Orchestra of Wales, Sinfonia Cymru og English Chamber Orchestra, frumflutti St Asaph’s Dance eftir Karl Jenkins og leikur á plötu Catrin Finch, Lullabies. Hún er gift Bryn Terfel og leikur oft með honum, meðal annars í Carnegie Hall, á Tanglewood-hátíðinni og í Ríkisóperunni í Hamborg.
Framundan
Ekkert framundan.

