← Allir listamenn

Hörpuleikari

Elísabet Waage

Hörpuleikari sem er fædd í Reykjavík og lærði á píanó hjá Halldóri Haraldssyni og á hörpu hjá Moniku Abendroth við Tónlistarskólann í Reykjavík. Að loknu píanókennaraprófi hélt hún til Hollands og lauk hörpukennaraprófi árið 1985 og einleikaraprófi árið 1987 frá Konunglega tónlistarháskólanum í Haag, þar sem Edward Witsenburg kenndi henni. Skömmu eftir útskrift var dúó hennar og flautuleikarans Peter Verduyn Lunel tekið inn í Young Musician í Hollandi, sem starfaði undir verndarvæng Yehudi Menuhin. Hún bjó og starfaði lengi í Hollandi og fluttist heim árið 2002. Hún hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Noord Nederlands Orkest, Residentie Orkest og Radio Symphonie Orkest, verið með Caput frá stofnun hópsins og leikið um árabil með Kammersveit Reykjavíkur. Hún leikur í fiðlu- og hörpudúói með Laufeyju Sigurðardóttur og selló- og hörpudúói með Gunnari Kvaran. Árið 1993 lék hún hörpukonsert Mistar Þorkelsdóttur á Heimsþingi hörpuleikara í Kaupmannahöfn og kom fram á þinginu í Amsterdam árið 2008. Fjöldi íslenskra tónskálda hefur samið fyrir hana.

Framundan