Íslenskur sellóleikari og hljómsveitarstjóri. Hann lauk meistaragráðu frá Konunglega danska tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn hjá Morten Zeuthen og Toke Møldrup og nam síðan hljómsveitarstjórn við Conservatorium van Amsterdam. Hann leikur með Kammersveitinni Elju og hefur komið fram á kammertónlistarhátíðum víða um Evrópu. Hann var valinn í Malko-hljómsveitarstjóraakademíu Dönsku útvarpshljómsveitarinnar 2020 til 2022 og tók nýlega þátt í Dirigentløftet, hvatningarverkefni fyrir unga hljómsveitarstjóra í Danmörku. Hann kom fyrst fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem sellóleikari árið 2019, þegar hann vann keppnina Unga einleikara, og hefur verið í hljómsveitarstjóraakademíu sveitarinnar frá 2023.