← Allir listamenn
Útsetjari og hljómsveitarstjóri
Daniel Nolgård
Sænskur hljómsveitarstjóri, útsetjari og píanóleikari. Hann hefur unnið með Stórsveit Reykjavíkur um langt árabil, allt frá tónleikaferð sveitarinnar á Sandviken-jazzhátíðina sumarið 2001, og hefur stjórnað henni meðal annars á jólatónleikum sveitarinnar og á tónleikum með söngkonunni Kristjönu Stefánsdóttur. Hann hefur unnið lengi með saxófónleikaranum og tónskáldinu Sigurði Flosasyni, og árið 2008 kom út hjá Dimmu platan Dark Thoughts, þar sem Sigurður leikur á saxófón með Norrbotten Big Band í Svíþjóð í útsetningum Daniels Nolgård.
Framundan
20:00Djass
Stórsveitin leikur tónlist Sigurðar Flosasonar
Silfurberg, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
6.990 kr.≈ 51 EUR≈ 56 $≈ 80 CAD≈ 43 GBP≈ 381 DKK


