← Allir listamenn

Hljómsveitarstjóri

Bjarni Frímann Bjarnason

Hljómsveitarstjóri sem lærði á fiðlu hjá Lilju Hjaltadóttur og Guðnýju Guðmundsdóttur og lauk prófi í víóluleik frá Listaháskóla Íslands. Árið 2009 vann hann einleikarakeppni Listaháskólans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og lék í kjölfarið víólukonsert Bartóks með sveitinni. Síðan nam hann hljómsveitarstjórn hjá Fred Buttkewitz við Hanns Eisler-tónlistarháskólann í Berlín. Hann hefur stjórnað flestum hljómsveitum á Íslandi og komið fram víða sem strengja- og hljómborðsleikari, leikið á píanó með söngvurum og í kammertónlist, meðal annars í Berlínarfílharmóníunni og Konzerthaus í Vínarborg, og samið tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir. Hann hefur verið tónlistarstjóri Íslensku óperunnar frá árinu 2017 og tók við stöðu staðarhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2019. Hann hefur einnig stjórnað verkefnum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og ferðaðist með Björk sem hljómsveitarstjóri á tónleikaferðinni Cornucopia.

Bjarni Frímann Bjarnason brosir í hvítri skyrtu og dökkum jakka, á skærbláum bakgrunni.

Framundan