Samtímatónlist
Afnám tilviljunar: Puruñeka Duo leikur sex ný verk
Umsjón: Puruñeka Duo

Slagverksleikararnir Matiss Leo Meckl og Tirso Ortiz Garrigós mynda Puruñeka Duo. Þeir kynntust í námi við Konunglega tónlistarháskólann í Haag og unnu Grachtenfestival Conservatorium Concours í Hollandi í febrúar 2026. Matiss er fyrrverandi nemandi Tónlistarskólans á Akureyri. Í Afnámi tilviljunar leika þeir sex ný verk fyrir slagverksdúó eftir tónskáld sem öll lærðu í Haag: Akiko Mik, Julian de Looff, Tirso Ortiz Garrigós, Delara Navaey, Nirita Yakthumba og Ilija Maršićević. Kveikjan er ljóð Stéphane Mallarmé, Un coup de dés jamais n'abolira le hasard, sem brýtur upp hefðbundið form ljóðlistarinnar. Leikið er á óhefðbundin hljóðfæri með óvenjulegum aðferðum, og hreyfing er hluti af tónlistinni, samin af danshöfundunum Mariu Gerasimou og Rebeku Mondovics.
Flytjendur
- Puruñeka Duoslagverksdúó
- Matiss Leo Mecklslagverk
- Tirso Ortiz Garrigósslagverk