
Sigurdís Tryggvadóttir er tónskáld, píanóleikari og söngkona og fagnar hér útgáfu fyrstu plötu sinnar, sem heitir Bergmál fjallanna. Tónlist hennar á rætur í djassi. Innblásturinn sækir hún í landslag Norðurlands vestra, þaðan sem hún er upprunnin. Af sömu slóðum var afabróðir hennar, Jónas Tryggvason (1916–1983), ljóð- og tónskáld sem tók ungur að missa sjónina. Sigurdís hefur samið lög við ljóð hans. Á plötunni eru einnig lög Jónasar sjálfs við ljóð Davíðs Stefánssonar og Þorsteins Valdimarssonar. Lög hans lifa í söng Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps, sem er einn elsti kór landsins. Með henni leika pólski kontrabassaleikarinn Mariusz Praśniewski og ungverski trommuleikarinn Péter Horváth. Þau búa öll í Danmörku. Platan verður til sölu á vínyl á tónleikunum, ásamt bæklingi með fimm ljóðanna og enskum þýðingum á þeim.
Flytjendur
- Sigurdís Tryggvadóttirpíanó og söngur
- Mariusz Praśniewskikontrabassi
- Péter Horváthtrommur
