Classical Iceland
Allir viðburðir

Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Sinfóníutónleikar

Storgårds stjórnar Bruckner 2

Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands

Tvö verk hljóma í fyrsta sinn í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands: píanókonsert Clöru Schumann og önnur sinfónía Antons Bruckner. Konsertinn samdi hún fjórtán ára gömul, þá Clara Wieck, og fáum árum síðar giftist hún Robert Schumann og tók upp eftirnafn hans. Sinfónían fékk snemma viðurnefnið Sinfónía þagnanna vegna þagnanna sem skilja að formhluta verksins; Bruckner fækkaði þeim í síðari gerð en nafnið hélt sér. John Storgårds stjórnar og leikur sjálfur einleik á fiðlu í þremur rómönsum eftir Clöru Schumann í hljómsveitarútsetningu Bernards Rofe. Alexandra Dariescu leikur einleik í konsertinum. Tónleikarnir taka um tvær klukkustundir með hléi.

Efnisskrá

  1. Clara Schumann3 rómönsur (úts. Bernard Rofe)
  2. Clara SchumannPíanókonsert
  3. Anton BrucknerSinfónía nr. 2