Hljómsveitarstjóri
John Storgårds
Hljómsveitarstjóri og fiðluleikari sem er aðalhljómsveitarstjóri Fílharmóníuhljómsveitar breska ríkisútvarpsins og Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Turku og hefur verið listrænn stjórnandi Kammerhljómsveitar Lapplands í þrjátíu ár. Frá og með starfsárinu 2026/27 tekur hann við tveimur stöðum til viðbótar, sem aðalhljómsveitarstjóri Arts Centre-hljómsveitarinnar í Ottawa og sem aðalhljómsveitarstjóri og listrænn ráðgjafi Junge Deutsche Philharmonie. Hann er reglulegur gestur hjá Berlínarfílharmóníunni, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig, Fílharmóníusveitinni í New York og Sinfóníuhljómsveitinni í Boston. Hann stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrst árið 2012, þegar Christian Tetzlaff lék báða fiðlukonserta Szymanowskis, og kom aftur árið 2017, þegar hann frumflutti hér Fimm söngva fyrir sópran og hljómsveit eftir Hafliða Hallgrímsson með Helenu Juntunen og stjórnaði sjöttu sinfóníu Sibeliusar.
Framundan
Ekkert framundan.


