← Allir listamenn
Píanóleikari
Alexandra Dariescu
Rúmenskur píanóleikari sem leikur öðrum fremur verk eftir tónskáld sem sjaldan heyrast, einkum eftir konur. Hún hefur leikið með BBC-sinfóníuhljómsveitinni, Sinfóníuhljómsveitinni í Lundúnum, Þjóðarhljómsveit Frakklands og konunglegu fílharmóníusveitunum í Stokkhólmi, Ósló og Kaupmannahöfn og unnið með hljómsveitarstjórunum Sakari Oramo, Vasily Petrenko og Cristian Măcelaru. Hún hefur frumflutt nýfundna konserta eftir Leokadiyu Kashperovu, Nadiu Boulanger og George Enescu, auk fjögurra konserta sem samdir voru fyrir hana. Hún kemur fyrst fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á starfsárinu 2026/27 og leikur þá píanókonsert Clöru Schumann í fyrsta sinn hér á landi.
Framundan
Ekkert framundan.

