Classical Iceland
Allir viðburðir

Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Fjölskylduviðburður

Jólatónleikar Sinfóníunnar

Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum. Nicholas Swensen stjórnar. Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og Jóhann Kristinsson syngja, og Kolbrún Völkudóttir syngur á táknmáli. Halldóra Geirharðsdóttir kynnir sem trúðurinn Barbara og flytur jólahugleiðingu sína. Með í för eru Stúlknakór Reykjavíkur og Kammerkórinn Aurora, Skólahljómsveit Kópavogs, tveir bjöllukórar og dansarar úr Listdansskóla Íslands, og Maxímús Músíkús setur upp rauðu húfuna. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli. Þeir taka um klukkustund án hlés og eru fluttir fjórum sinnum, tvisvar hvorn dag.

Flytjendur