Stúlknakór sem Margrét J. Pálmadóttir stofnaði haustið 1995 og starfar við Söngskólann Domus vox. Í kórnum syngja um 120 stúlkur á aldrinum sex til fimmtán ára úr skólum á höfuðborgarsvæðinu, og er honum skipt í aldurshópa. Kórinn hefur haldið fjölda tónleika og oft sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, farið í tónleikaferðir innanlands og til Ítalíu, Þýskalands og Danmerkur og tekið þátt í sýningum Borgarleikhússins, meðal annars í Bernhörðu Ölbu, Gullna hliðinu, Medeu og söngleiknum 9 líf.