← Allir listamenn

Kammerkórinn Aurora

Kammerkór ungra söngkvenna sem starfar innan Söngskólans Domus vox. Margrét J. Pálmadóttir stofnaði kórinn árið 1997, þegar tuttugu konur á aldrinum 22 til 40 ára fóru til Rómar í boði listamannsins Auro og sungu skömmu síðar á menningarhátíð í Rimini. Sigríður Soffía Hafliðadóttir tók við stjórn kórsins haustið 2015. Kórfélagar eru á aldrinum 17 til 33 ára og hafa allir lært einsöng við skólann. Kórinn hefur oft sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, meðal annars í tónlist Howards Shore við Lord of the Rings árið 2012 og í þriðju sinfóníu Mahlers árið 2014, og hann hefur tekið þátt í sýningum Borgarleikhússins, síðast í söngleiknum 9 líf. Vorið 2025 hlaut hann tilnefningu ásamt Stúlknakór Reykjavíkur á Sögum, verðlaunahátíð barnanna.

Kammerkórinn Aurora í svörtum fötum, hópurinn saman á hvítum bakgrunni.

Framundan