Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 3. janúar 1926 og er hundrað ára í ár. Í seinni hluta afmælisdagskrárinnar fær hann til sín sænska karlakórinn Orphei Drängar frá Uppsölum, sem hefur ekki sungið á Íslandi síðan 2002. Á efnisskrá gestanna eru verk eftir Hugo Alfvén, Peter Cornelius, Eleanor Daley, Ester Mägi, Knut Nystedt og Mikko Sidoroff, ásamt verkum Hildar Guðnadóttur og Þorkels Sigurbjörnssonar. Þá syngja þeir Tyger! Tyger! eftir Brian Hughes og Der Gondelfahrer eftir Schubert við undirleik Folke Alin. Ekki hefur verið greint frá því hvað heimamenn syngja. Í lokin sameinast kórarnir tveir, tvö hundruð raddir að sögn aðstandenda, í íslenskum og sænskum þjóðlögum. Stjórnendur eru Cecilia Rydinger og Friðrik S. Kristinsson.
Flytjendur
- Karlakór Reykjavíkurkór
- Friðrik S. Kristinssonstjórnandi