Karlakór Reykjavíkur
Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 3. janúar 1926. Tónskáldið Sigurður Þórðarson gekkst fyrir stofnun hans og stjórnaði honum til 1962, að einu ári undanskildu. Kórinn söng fyrst erlendis árið 1935, í Bergen, Ósló, Stokkhólmi, Gautaborg og Kaupmannahöfn, með Stefán Íslandi sem einsöngvara og Emil Thoroddsen sem undirleikara. Söngför vestur um haf var fullbúin fyrir árið 1939 en frestaðist vegna stríðsins. Hún var farin 1946 og þá sungnir 56 tónleikar, og í annarri ferð vestur árið 1960 voru þeir 39. Árið 1979 söng kórinn í Kína, fyrstur kóra frá Vesturlöndum eftir menningarbyltinguna, og utanlandsferðirnar eru nú orðnar 23. Lengi átti kórinn sitt eigið húsnæði: Freyjugötu 14 frá 1962, Skógarhlíð 20 frá 1998, þar sem salurinn hét Ýmir, og síðast hæð við Grensásveg sem nefnd var Gerðhamrar eftir fæðingarstað stofnandans. Frá 2015 hefur hann æft í safnaðarheimili Háteigskirkju. Félagar eru um áttatíu. Söngstjóri er Friðrik S. Kristinsson.
Framundan
Ekkert framundan.