Classical Iceland
Allir viðburðir

Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Sinfóníutónleikar

Aðventutónleikar

Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands

Matthew Halls stjórnar efnisskrá úr klassíska tímanum. Tónleikarnir hefjast á balletttónlist úr óperu Mozarts, Idomeneo, sem lengi hefur hljómað ein og sér í tónleikasölum. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir leikur einleik í sellókonsert Haydns í D-dúr. Þá hljómar sinfónía í C-dúr eftir Mariönnu Martines, sem oftast er talin fyrsta konan til að semja sinfóníu, og tónleikunum lýkur á Linz-sinfóníu Mozarts, sem hann samdi í stuttri viðkomu í borginni árið 1783. Tónleikarnir taka um tvær klukkustundir með hléi.

Efnisskrá

  1. Wolfgang Amadeus MozartBallettónlist úr óperunni Idomeneo
  2. Joseph HaydnSellókonsert nr. 2 í D-dúr
  3. Marianna MartinesSinfónía í C-dúr
  4. Wolfgang Amadeus MozartSinfónía nr. 36, Linz

Flytjendur