Organisti
Björn Steinar Sólbergsson
Organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju. Hann var organisti við Akureyrarkirkju í tuttugu ár og kennir orgelleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands. Hann nam við Tónlistarskólann á Akranesi og Tónskóla þjóðkirkjunnar, síðan á Ítalíu hjá James E. Goettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Région de Rueil-Malmaison hjá Susan Landale, þar sem hann lauk einleikaraprófi í orgelleik, Prix de virtuosité, árið 1986. Hann hefur haldið einleikstónleika hér heima, á Norðurlöndunum, í Evrópu og Norður-Ameríku og leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveitinni í Stavanger og hljómsveit Cleveland Institute of Music. Meðal hljóðritana hans eru öll orgelverk Páls Ísólfssonar og orgelkonsert Jóns Leifs.
Framundan
Björn Steinar Sólbergsson: 40 ára starfsafmæli
Hallgrímskirkja, Reykjavík
Ókeypis
