← Allir viðburðir
Einleikstónleikar
Björn Steinar Sólbergsson: 40 ára starfsafmæli
Umsjón: Hallgrímskirkja

Björn Steinar Sólbergsson, organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju, fagnar fjörutíu árum við orgelið, tuttugu í Akureyrarkirkju og tuttugu í Hallgrímskirkju. Efnisskráin er valin úr þeim tónlistarheimi sem hefur fylgt honum þessa fjóra áratugi og af nýjum hljómdiski hans, Icelandic Organ Music, sem kom út fyrr á árinu. Tónleikarnir eru jafnframt útgáfutónleikar disksins og sama dag á Björn Steinar afmæli. Aðgangur er ókeypis og diskurinn er til sölu í kirkjubúðinni.