← Allir tónleikastaðir

Kirkja · Vestfirðir, Ísafjörður

Ísafjarðarkirkja

Áskrift að dagatali

Allir tónleikar á þessum stað fara í dagatalið þitt. Það sem bætist við síðar kemur sjálfkrafa, þótt sum dagatöl líti aðeins inn nokkrum sinnum á dag.

Hróbjartur Hróbjartsson teiknaði Ísafjarðarkirkju og hún var vígð á uppstigningardag 1995. Áður stóð á Ísafirði timburkirkja frá 1863 sem skemmdist mikið í eldsvoða árið 1987. Veggir og þak eru steinsteypt. Líparítmulningur í ysta lagi múrhúðarinnar gefur kirkjunni gulan lit. Altaristaflan, Fuglar himinsins, er gerð úr 749 lóum sem sóknarbörn og gestir þeirra mótuðu úr jarðleir undir handleiðslu höfundarins, Ólafar Nordal. Orgelið er tuttugu og þriggja radda frá Bruhn og var sett upp í desember 1995. Kirkjan á einnig Bösendorfer-flygil. Klukkurnar þrjár í turninum voru allar í gömlu kirkjunni. Sú elsta er frá 1787.

Staðsetning

Heimilisfang
Sólgata 1400 Ísafjörður

Orgel

Smiður
Bruhn
Smíðað
1995
Raddir
23

Framundan

Í nágrenninu