← Allir tónleikastaðir

Kirkja · Vestfirðir, Bolungarvík

Hólskirkja

Áskrift að dagatali

Allir tónleikar á þessum stað fara í dagatalið þitt. Það sem bætist við síðar kemur sjálfkrafa, þótt sum dagatöl líti aðeins inn nokkrum sinnum á dag.

Hólskirkja í Bolungarvík er friðlýst timburkirkja, byggð árið 1908 eftir teikningu Rögnvalds Ólafssonar, húsameistara ríkisins. Viðurinn var tilsniðinn í Noregi. Síðar voru reistar viðbyggingar hvorum megin við turninn. Kirkjan er klædd bárujárni og stendur á steinsteyptum sökkli, og á turninum er hátt píramítaþak. Kristsstyttan á altarinu er eftirmynd af styttu Thorvaldsens í Frúarkirkju og var komin í kirkjuna árið 1928. Ríkarður Jónsson skar skírnarfontinn út í eik árið 1942. Orgelið er átta radda pípuorgel, smíðað á verkstæði Kempers í Lübeck árið 1960.

Staðsetning

Heimilisfang
Kirkjuvegur415 Bolungarvík

Orgel

Smiður
Kemper
Smíðað
1960
Raddir
8

Framundan

Í nágrenninu